Íslandsmeistarar í 3. fl. kv. b-liða.
Hér er mynd af stelpunum í 3. fl. við verðlaunaafhendinguna á sunnudaginn var. Til hamingju stelpur. Þjálfari liðsins er Piotr Kempisty - núverandi Íþróttamaður KA.
Lesa meira


Hér er mynd af stelpunum í 3. fl. við verðlaunaafhendinguna á sunnudaginn var. Til hamingju stelpur. Þjálfari liðsins er Piotr Kempisty - núverandi Íþróttamaður KA.
Lesa meiraSíðari hluti Íslandsmóts yngri flokkanna í blaki fór fram í Kópavogi 16. – 18. apríl. KA sendi sex lið til keppni og var afraksturinn tveir Íslandsmeistaratitlar og tvenn silfurverðlaun og verður það að teljast frábær árangur. Myndir af liðunum má sjá hér að ofan í myndir.
KA spilaði síðasta heimaleik sinn á Íslandsmótinu í kvöld og voru meistarar HK í heimsókn. Það er skemmst frá því að segja að HK vann leikinn nokkuð sannfærandi. KA á eftir útileik gegn Fylki en sá leikur skiptir engu máli þar sem Árbæjardömur eru öruggar með þriðja sætið og KA verður í því fjórða. Sama dag munu HK og Þróttur Nes berjast um Íslandsmeistaratitilinn og nægir Þrótti að vinna tvær hrinur í leiknum til að tryggja sér titilinn.
Lesa meiraMikil veisla var haldin s.l. laugardag hjá blakhjónunum Adda og Heiðu. Þar mættu flestir leikmenn karla- og kvennaliðs KA auk stjórnar blakdeildar. Buðu herra og frú Blak upp á æðislega kjúklingasúpu og köku í eftirrétt. Hilmar Sigurjónsson, fyrirliði karlaliðsins og Jóhann bróðir hans komust því miður ekki í veisluna þar sem þeir lentu í hörðum árekstri rétt sunnan við Blönduós. Heimasíðan mætti í veisluna og smellti af nokkrum myndum. Í dag fór hún svo í heimsókn á spítalann og þar var mikið fjör þrátt fyrir óskemmtilegt tilefnið. Myndir af báðum stöðum má sjá í myndasafninu.
Lesa meira