Handboltafréttir / Skómarkaður
Handbolti - miðvikudagur 08.september 2010 - Stefán Jóhannsson - Lestrar 48 - Athugasemdir (0)
Þá er fyrsta vika handboltatímabilsins liðin og er mæting á æfingar mjög góð, gaman að sjá hvað bæði strákar og stelpur eru áhugasöm og hafa gaman á æfingum. Allir krakkar eru velkomnir að koma og prófa. Í vetur ætlum við að reyna að setja upplýsingar um starfið hér á heimasíðu KA og verður þá vonandi auðveldara að fylgjast með því sem er að gerast hjá okkur.
Nú er einmitt tíminn sem menn eru að velta fyrir sér kaupum á innanhússkóm. Skórnir frá síðasta vetri orðnir of litlir, þó þeir séu svo til óslitnir og dýrt að kaupa nýja. Við ætlum því að bjóða upp á skiptimarkað með innanhússkó , næstkomandi laugardag.
Lesa meira



























