Einar Rafn markakóngur Olísdeildarinnar

Handbolti
Einar Rafn markakóngur Olísdeildarinnar
Annað árið í röð!

Einar Rafn Eiðsson gerði sér lítið fyrir og tryggði sér markakóngstitilinn í Olísdeildinni annað árið í röð. Þetta er ótrúlegt en satt fjórða árið í röð sem að KA á markakóng deildarinnar en allir eru þeir örvhentir, sem er mögnuð staðreynd!

Einar gerði alls 151 mark í deildinni í vetur sem gera 6,86 mörk að meðaltali í leik. Eins og áður segir er þetta annað árið í röð sem Einar er markakóngur deildarinnar en þetta er í þriðja skiptið sem Einar hampar þessum titli en hann varð einnig markakóngur með FH tímabilið 2015-2016.

Óðinn Þór Ríkharðsson varð markakóngur með KA veturinn 2021-2022 en þar áður var það Árni Bragi Eyjólfsson sem var markakóngur. Þetta er alls í tíunda skiptið sem markakóngur efstu deildar í handboltanum kemur úr röðum KA, en Bjarni Fritzson varð markakóngur 2011-2012 með sameiginlegu liði Akureyrar Handboltafélags sem lék undir merkjum KA og Þórs.

Þar áður varð Halldór Jóhann Sigfússon markakóngur tímabilið 2004-2005 og var það annað árið í röð sem markakóngur deildarinnar kom úr röðum KA en Arnór Atlason varð hlutskarpastur veturinn 2003-2004.

Fyrsti markakóngur KA var Valdimar Grímsson er hann gerði 9,9 mörk að meðaltali í leik tímabilið 1993-1994 og hefur enginn toppað það afrek síðar. Árið eftir var það Patrekur Jóhannesson sem varð markahæstur og loks var það Róbert Julian Duranona sem tryggði KA titilinn þriðja árið í röð veturinn 1995-1996.

Hér má sjá lista yfir markakónga KA í efstu deild:

Einar Rafn Eiðsson
2022-2023

Einar Rafn Eiðsson hélt uppteknum hætti örvhentra leikmanna KA er hann varð markakóngur Olísdeildarinnar veturinn 2022-2023. Einar Rafn steig heldur betur upp og fór fyrir ungu liði KA er hann skoraði 162 mörk í 22 leikjum sem gera 7,36 mörk að meðaltali í leik. Þetta er í annað skiptið sem Einar hampar titlinum en hann var markakóngur með liði FH tímabilið 2015-2016.

Óðinn Þór Ríkharðsson
2021-2022

Óðinn Þór Ríkharðsson gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2021-2022 frá liði Team Tvis Holstebro í Danmörku. Hann sló heldur betur í gegn en ótrúleg skottækni hans hreif stuðningsmenn KA strax í fyrsta leik og raðaði hann inn mörkunum. Hann varð að lokum markakóngur Olísdeildar karla en hann gerði alls 149 mörk í 21 leik sem gera 7,1 mark að meðaltali í leik. Óðinn var auk þess í liði ársins hjá HBStatz í hægra horni.

Árni Bragi Eyjólfsson
2020-2021

Árni Bragi Eyjólfsson sneri aftur norður fyrir tímabilið 2020-2021 en hann hafði leikið með yngriflokkum félagsins áður en hann gekk til liðs við Aftureldingu. Hann spilaði gríðarlega vel í liði KA sem steig stórt skref fram á við með sæti í úrslitakeppninni og gerði Árni Bragi 163 mörk sem gera 7,4 mörk að meðaltali. Á lokahófi HSÍ var hann kjörinn besti leikmaður deildarinnar auk þess að vera besti sóknarmaðurinn.

Bjarni Fritzson
2011-2012

Bjarni Fritzson var eini markakóngur sameiginlegs liðs Akureyrar er hann gerði 163 mörk veturinn 2011-2012 en það gera 7,7 mörk að meðaltali í leik. Þá var Bjarni einnig markahæsti leikmaður í sögu hins sameiginlega liðs en hann gerði 709 mörk fyrir Akureyri sem var starfrækt frá árinu 2006 til 2017.

Halldór Jóhann Sigfússon
2004-2005

Halldór Jóhann Sigfússon sneri aftur heim í KA fyrir tímabilið 2004-2005 eftir að hafa leikið með Friesenheim í Þýskalandi. Endurkoma Dóra reyndist ansi farsæl en hann varð markakóngur með 168 mörk eða 8,4 mörk að meðaltali í leik. Dóri hélt aftur út að tímabilinu loknu og gekk til liðs við Tusem Essen.

Arnór Atlason
2003-2004

Arnór Atlason átti stórkostlegt tímabil með KA veturinn 2003-2004 þar sem liðið varð meðal annars Bikarmeistari. Þrátt fyrir ungan aldur fór hann fyrir liði KA og varð markakóngur efstu deildar með 237 mörk sem gera 9,48 mörk að meðaltali í leik. Arnór var í lok tímabils valinn besti leikmaður deildarinnar og sá efnilegasti og gekk í kjölfarið í raðir þýska stórliðsins SC Magdeburgar.

Róbert Julian Duranona
1995-1996

Það vakti mikla athygli þegar Duranona gekk til liðs við KA fyrir tímabilið 1995-1996. Hann varð snemma gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna KA og hann varð markakóngur efstu deildar á sínu fyrsta tímabili með liðinu er hann gerði 194 mörk sem gera 8,8 mörk að meðaltali í leik. Duranona varð fyrsti erlendi leikmaðurinn sem varð markakóngur en hann fékk síðar íslenskt ríkisfang. Einnig var hann valinn besti sóknarmaður deildarinnar.

Patrekur Jóhannesson
1994-1995

Patrekur Jóhannesson varð markakóngur efstu deildar tímabilið 1994-1995 þegar hann gerði 162 mörk sem gera 7,7 mörk að meðaltali í leik. Rétt eins og Valdimar árið áður varð Patrekur markakóngur á sínu fyrsta tímabili með KA. Patrekur var í lok tímabils valinn besti leikmaður deildarinnar.

Valdimar Grímsson
1993-1994

Valdimar Grímsson varð fyrsti markakóngur efstu deildar úr röðum KA tímabilið 1993-1994. Valdimar gerði alls 198 mörk sem gera 9,9 mörk að meðaltali í leik. Valdimar gekk í raðir KA fyrir tímabilið og átti stóran þátt í uppbyggingu liðsins. Liðið lék í fyrsta skipti til úrslita í bikarkeppninni og hampaði titlinum svo ári síðar með Valdimar innan sinna raða.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is