Magnús Dagur framlengir um þrjú ár

Handbolti
Magnús Dagur framlengir um þrjú ár
Jón Heiðar og Magnús handsala samninginn

Magnús Dagur Jónatansson skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Eru þetta afar jákvæðar fréttir en Magnús sem er 17 ára gamall er einn efnilegasti leikmaður landsins og nú þegar kominn í stórt hlutverk í meistaraflokksliði KA.

Magnús er hluti af hinum gríðarlega sigursæla 2006 árgangi hjá KA en strákarnir töpuðu ekki leik í þau tvö ár sem þeir léku í 4. flokki og hömpuðu loks sigri á Partille Cup sem er stærsta handboltamót heims. Strákarnir hömpuðu svo Bikarmeistararatitlinum í 3. flokki í Laugardalshöllinni í gær.

Einnig er Magnús fyrirliði í U18 ára landsliði Íslands en hann býr yfir miklum leiðtogahæfileikum auk þess sem hann er mikill liðsmaður. Í janúar fékk hann Böggubikarinn en hann er veittum einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

 

"Við erum gríðarlega ánægðir að Magnús sé tilbúinn að skuldbinda sig í verkefnið með okkur næstu þrjú árin. Magnús er einn efnilegasti leikmaður landsins og hlökkum við til þess að sjá hann vaxa og dafna í gulu treyjunni" segir Haddur Júlíus Stefánsson formaður handknattleiksdeildar KA.

"Ég er ótrúlega ánægður með að Magnús taki slaginn með okkur áfram. Hann er stórt púsl í okkar plönum næstu árin" segir Halldór Stefán Haraldsson, þjálfari KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is